sjitturinn titturinn

katla

24.10.2006 13:26:08 / katlasif

Stutt og laggott ;)

*Jæja það er voða lítið eftir af skólanum. bara þessi vika og fram að miðvikud í næstu viku. Það er e-ð hópaverkefni eftir, þannig að þetta er bara gaman... það stefnir allt í áttina að ég sé að fara að leysa af í grunnskólanum, byrja vonandi þegar skólinn er búinn hjá mér, þá fer ég í tíma með kennurum og fylgist með, ég er voða spennt fyrir þessu, vona að þetta gangi allt upp... *EN það styttist í afmælið mitt 15 nov og svo á lalli notturlega afmæli 16 nóv :) en ég er að pæla að halda upp á það, en er bara ekki alveg viss hvenær það á að vera... veit e-r hvort að það sé e-ð að gerast núna bráðlega, e-r böll, helst í grindavík ?? þæginlegra, en já ég þarf að skoða þetta. langar að hafa afmæli og svo er bara farið beint á ball.. Er mikið að pæla í þessu :) EN þetta kemur allt í ljós vonandi. ->Ég held nú að hún Ágústa ætti nú að vita e-ð um þetta, kannski ég bjalli bara í hana hehe<- *Er að fara í nudd á eftir, eða höfuðbeina og spjalddhrygg e-ð, vonandi verður það ekki vont... *Sálin var á laugard og afmæli hjá palla á undan, mjög gaman :) takk fyrir mig palli, sálin stendur alltaf fyrir sínum, vá hvað það er alltaf gaman að vera fremst og syngja og syngja eins og ég veit ekki hvað, svo tekur stebbi alltaf myndavélar og tekur myndir af sér og okkur og bara öllum í kring um sig :) Snilld... *Æfing í kvöld í Reykjaneshöllinni kl sko hálf 10, fyrst útihlaup kl 9, vá þetta er svo seint, veit ekki hvort maður meiki það, en gaman samt að fara á gras, ekki bara inni... En ég ætla nú bara að hafa þetta stutt og laggott :) Farvelll..
Ágústa skrifaði
dadadaraddada delgí delgí delgí delgí .... ég er búin að vera með þetta á heilanum alla vikuna :D :D en af hverju ætti ég að vita um eitthvað ball ?? ég skil þig ekki alveg...
katla skrifaði
snilldar leikur :) en þarna já datt kannski í hug að þú vissir hvort það væri e-ð djamm bráðlega í grindavíkinni ;)
Birna Pálsd. skrifaði
Omg. hversu krúttlegt er það að þið eigið afmæli hlið við hlið:)
Sigga má skrifaði
jæja sæta, nú ertu komin með samkeppnisbloggara....jább ég er byrjuð að blogga, þetta er nú reyndar í tengslum við skólann en það er aldrei að vita nema ég taki þetta MJÖG alvarlega og byrji að blogga reglulega....
Jóhann skrifaði
áttu afmæli 15...ég hélt að það væri 14..þá kemur auglýsingin ekki fyrr en 15....:)
katla skrifaði
jóhann haha :) ekkert svona, þú munt sjá eftir því... ég fer að grenja ef þú gefur mér ekki bara almennilega afmælisgjöf. punktur :)
Kata Sif skrifaði
ég ákvað að kvitta fyrir mig fyrst ég fann þetta fallega blogg! :) takk fyrir síðast
Petra Rós skrifaði
hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæl´ hún Katla hún á afmæli í dag Núna er ég líka búin að syngja fyrir þig :) Afmæliskveðja Petra Rós
Hrafnhildur Guðjónsdóttir skrifaði
Hæhæ og til hamingju með afmælið :) Kv. hrafnhildur
Brynhildur skrifaði
Til hamingju með afmælið sæta Loksins kemstu í ríkið ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.