sjitturinn titturinn

katla

08.07.2007 12:17:29 / katlasif

Það er komið sumar :)

Loksins almennilegt blogg haha :) nei ætli maður standi nokkuð við það... veit ekki hvað maður gerir með þessa síðu...

en írskir dagar eru þessa helgi, vá það er liðið ár síðan ég fór á írska daga á akranesi, og það var frekar skrautlegt... það kom ekki einu sinni til greina að fara, lalli að keppa í körfu og ég í fótbolta og svona hehe. 

Það er leikur í dag á móti haukum, það er spurning hvernig hann fer.

Er að vinna í Landsbankanum, svaka stuð þar. Ég og Hrafnhildur sumarstarfsmenn að gera gott :)

Útilegur: ekki margar þetta sumarið, alltaf að keppa og vesen...

Útlönd: ekki í sumar :(

Eyjar: förum ekki til eyjar í sumar, heldur erum við að pæla að fara í útilegu þar sem góða veðrið verður með valgerði og guðfinna og co. notturlega :) það verður bara gaman hjá okkur... 

Flytja: erum nr 11 á biðlista inná stúdentagardana. Komumst vonandi pottþétt inn þar.

Flytja: erum loksins komin heim í efstahraunið. það er búið að vera að gera það upp. 3 -4 mánuðir tók það...

Matarboð: fórum í matarboð til Siggu Gulla og Sögu í gær, mjög gott, takk kærlega fyrir okkur:)

Læra: Ég er að fara á uppeldis og menntunarfræði og Lalli í viðskiptafræði í HÍ...

Vá hvað mig langar til útlanda og fá smá lit og slaka á... maður er bara vinnandi all day long, svo bara æfing næst bara upp í rúm.. dagurinn frekar fljótur að líða svona. En ég er búin að vera í bankanum í 1 mánuð og þetta er svona jú að ganga... Skemmtilegra heldur en í fiskinum myndi ég nú segja.. Þetta er tilbreyting ! En já við erum að fara vestur næstu helgi, árgangurinn að fara að hittast, vonandi að það verði gaman, keyra í 6 tíma... Djammað báða dagana ! alltaf gaman að koma vestur og djamma hehe, maður er nú farin að sakna þess að djamma þar. Vá hvað þetta var skemmtilegt hérna í gamla daga. öll böllin, sveitaböllin :) ég mæli með djammi fyrir vestan. Jæja kannski maður reyni að blogga e-ð í lok sumarsins hehe ég væri alveg til í að fá að vita hverjir þessir 12 manns eru sem kíkja alltaf á bloggið mitt.. örugglega alltaf bara sömu 12 daglega :) snilld..

Hafið það gott í sumar :) ég smelli kannski inn e-i færslu...

 

Petra Rós skrifaði
hey ég kíki kannski ekki daglega en tek rúntinn reglulega og gaman að sjá þig aftur hérna !!
eyþór skrifaði
vei ! blogg ;)
sigga má skrifaði
sæl og takk fyrir komuna, alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn. Ég kíki á hverjum degi og fékk hjartastopp þegar ég sá að þú varst búin að blogga og setja inn myndir, átti alls ekki von á því.......kíki samt alltaf svona til vonar og vara kv. Sigga má
Oddný skrifaði
gaman að heyra í þér;-) hlakka til að fá þig í borgina í haust!!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.