Þá er maður byrjaður í háskóla, uppeldis- og menntunarfræði, svaka stuð. Kristín vínkona að vestan skellti sér í þetta með mér og við erum bara að meika það. Svolítið erfitt að koma sér í gírinn en.. þetta kemur allt með tímanum, byrja almennilega eftir helgi, bara á fullu
Við Lalli erum loksins búin að koma okkur vel fyrir á Eggertsgötunni í borg óttans, sem ég er alveg sammála, er alveg skít hrædd hérna. Ekki alveg öruggasta playsið en jú þetta fylgir háskólanum.
Svo er maður bara orðinn trúlofaður, Lalli bað mín á mánud, 10 sept, bara svaka rómó
hann er geggjaður... Þannig það eru bara skemmtilegir tímar framundan.
Annars bara endilega kíkja í nýja "húsið" okkar á eggertsgötunni. Alltaf heitt á könnunni. Bara hringja á undan hehe.
Ég held að ég muni fara að blogga oftar núna, bara finna sér e-ð annað að gera heldur en að læra.. bæði gott og slæmt notturlega
MSN(IÐ
hætti bara allt í einu að virka hjá mér, svo ég kemst ekkert inná það. Þið megið endilega ef þið viljið tala við mig á msn skrifa í commentið hotmailið ykkar svo ég geti addað ykkur inn þegar Sigurpáll bróðir er búin að redda mér nýju msni. Kann það ekki alveg
Hafið það sem allra best allir nær sem fjær...